Fotbolti.net
26.09.15 - 15:50
Alexander Freyr Tamimi

FH Íslandsmeistari 2015 (Staðfest)

FH-ingar eru Íslandsmeistarar.

FH-ingar eru Íslandsmeistarar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

FH 2 - 1 Fjölnir
1-0 Atli Guðnason (\'50)
1-1 Kennie Knak Chopart (\'69)
2-1 Emil Pálsson (´80)
FH er Íslandsmeistari árið 2015 eftir 2-1 sigur gegn Fjölni í Kaplakrikanum í næstsíðustu umferð Pepsi-deildarinnar rétt í þessu.

Ljóst var að FH myndi tryggja sér titilinn með sigri, óháð úrslitum annarra leikja, og lærisveinar Heimis Guðjónssonar gerðu það sem gera þurfti.

Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Atli Guðnason FH-ingum í 1-0 snemma í seinni hálfleik. Tæpum 20 mínútum síðar jafnaði Kennie Chopart hins vegar metin fyrir Fjölnismenn og voru gestirnir þar með að gera sig líklega til að hleypa titilbaráttunni í algert uppnám fyrir lokaumferðina.

Það var hins vegar vel við hæfi að Emil Pálsson skyldi loka titlinum með sigurmarki FH-inga gegn liðinu sem hann var á láni hjá fyrri hluta tímabilsins. Það gerði hann með marki á 80. mínútu.

Lokatölur urðu því 2-1 fyrir FH og Íslandsmeistaratitillinn snýr aftur í Hafnarfjörð eftir tveggja ára fjarveru. FH er með fimm stiga forskot á Breiðablik þegar ein umferð er eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.