Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, klikkaði á vítaspyrnu í gær er liðið tapaði 1-0 gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni.
Fernandes gat jafnað metin fyrir Man Utd í uppbótartíma en skaut boltanum þá yfir úr vítaspyrnu er staðan var 1-0 fyrir Villa.
Portúgalinn tjáði sig á Instagram eftir leik en hann hefur hingað til verið ansi öruggur í sínum spyrnum.
„Það er enginn sem er jafn pirraður og vonsvikinn yfir þessari vítaspyrnu og í kjölfarið tapinu," skrifaði Fernandes.
„Ég hef alltaf tekið minni ábyrgð og staðið undir þeirri pressu sem myndast eins og í dag. Í dag þá missteig ég mig."
„Ég tók skrefið fram á við og tók þessari áskorun með ábyrgð eins og í öðrum tilfellum og þá endaði boltinn í netinu."
Athugasemdir