Napoli 2 - 0 Cagliari
1-0 Victor Osimhen ('11 )
2-0 Lorenzo Insigne ('57 , víti)
1-0 Victor Osimhen ('11 )
2-0 Lorenzo Insigne ('57 , víti)
Luciano Spalletti og hans menn í Napoli unnu sjötta sigur sinn í ítölsku deildinni í kvöld er liðið vann Cagliari, 2-0, á Diego Armando Maradona-leikvanginum.
Nígeríski framherjinn Victor Osimhen skoraði fjórða mark sitt í deildinni á tímabilinu á 11. mínútu leiksins. Osimhen er að blómsta undir Spalletti og er kominn með 6 mörk í 6 leikjum í öllum keppnum.
Napoli bar höfuð og herðar yfir lið Cagliari í leiknum. Lorenzo Insigne tvöfaldaði forystuna með marki úr vítaspyrnu á 57. mínútu og hefði liðið auðveldlega getað bætt við fleirum.
Liðið sætti sig þó við 2-0 sigur og er á toppnum með 18 stig og fullt hús stiga eftir sex umferðir.
Athugasemdir