Real Madrid hefur áhuga á því að kaupa Trent Alexander-Arnold, hægri bakvörð Liverpool.
Alexander-Arnold þykir einn besti hægri bakvörður í heimi og er gríðarlega mikilvægur hluti af liði Liverpool. Hann hefur unnið bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina með Liverpool.
Það er ólíklegt að Liverpool muni selja hann, en samkvæmt El Nacional þá ætlar Real Madrid að sjá hvernig landið liggur með bakvörðinn.
Tími Dani Carvajal með Real Madrid er að verða búinn og væri Alexander-Arnold fullkominn arftaki fyrir hann í spænsku höfuðborginni.
Alexander-Arnold, sem er 22 ára, á 14 A-landsleiki að baki fyrir Englands hönd.
Athugasemdir