Maurizio Sarri missti sig aðeins í fögnuðinum eftir 3-2 sigur Lazio á Roma í Derby della Capitale í Seríu A.
Lukkudýr Lazio er örninn Olympia en hún er á öllum heimaleikjum ítalska liðsins.
Eftir sigur Lazio í kvöld hljóp Sarri að Olympia og hélt á hennien ítalski þjálfarinn segir að adrenalínið hafi fengið að ráða för.
„Ég bjóst ekki við að maður fengi þessa adrenalínsprautu og gleði við að vinna nágrannaslaginn. Olympia sefur nálægt herbergi mínu á æfingasvæðinu, þannig ég heyri stundum í henni," sagði Sarri eftir leik.
Myndband af Sarri og Olympia má sjá hér fyrir neðan.
Lazio win the Derby della Capitale! 💠
— Football on BT Sport (@btsportfootball) September 26, 2021
Maurizio Sarri's Lazio best José Mourinho's Roma in a spectacular match in Rome 🦅💥🐺 pic.twitter.com/8kz51QMltW
Athugasemdir