Fotbolti.net
26.09.21 - 22:29
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu atvikið: Markvörður Sheffield Wednesday gerði skelfileg mistök

Bailey Peacock-Farrell gerði stór mistök

Bailey Peacock-Farrell gerði stór mistök

Canon

Mynd: Getty Images

Ipswich Town gerði 1-1 jafntefli við Sheffield Wednesday í ensku C-deildinni í gær en liðið gerði jöfnunarmark undir lok leiks eftir skelfileg mistök Bailey Peacock-Farrell.
Dennis Adeniran kom Sheffield Wednesday yfir á 26. mínútu leiksins og allt útlit fyrir það að liðið myndi taka öll stigin.

Peacock-Farrell, markvörður Wednesday, var þó á öðru máli og var ekki meðvitaður um að það væri leikmaður fyrir aftan hann er hann ætlaði að spila frá marki.

Hann lagði boltann niður og ætlaði að senda hann frá sér en þá kom framherji Ipswich, stal boltanum og kom honum á Scott Fraser sem framlengdi á Conor Chaplin og þaðan í netið. Það versta við þetta er að samherjar Peacock-Farrell voru vel meðvitaðir um manninn fyrir aftan hann en sögðu ekkert.

Hægt er að sjá þessi mistök og markið hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.