Tveir íslenskir leikmenn hafa skrifað undir hjá kýpverska félaginu Omonia.
Umboðsmaðurinn Alberto A. Larrea segir frá þessu á samfélagsmiðlum.
Leikmennirnir sem umræðir eru þær Birgitta Hallgrímsdóttir og Þorbjörg Jóna Garðarsdóttir.
Birgitta kemur til Omonia frá Haukum í Hafnarfirði, en hún spilaði seinni hluta síðustu leiktíðar með Keflavík í Pepsi Max-deildinni. Hún spilar fremst á vellinum.
Þorbjörg Jóna er varnarmaður sem spilaði með Einherja í 2. deild kvenna á síðustu leiktíð. Hún hefur einnig spilað með Grindavík á sínum ferli.
Núna eru þrír íslenskir leikmenn að spila á Kýpur. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir leikur með Apollon.
Athugasemdir