26.10.15 - 21:11
Ívan Guðjón Baldursson
Dagný Brynjarsdóttir til Portland Thorns (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagný Brynjarsdóttir mun spila fyrir Portland Thorns FC á næsta tímabili í norður-ameríska kvennaboltanum.
Portland endaði í sjötta sæti af níu í fyrra og fær Dagnýju frá Boston Breakers. Búið er að bæta Dagnýju við leikmannahópinn en þó á eftir að ganga frá öllum pappírum áður en hún verður gjaldgeng.

Dagný er 24 ára gömul og vakti mikla athygli á sér þegar hún spilaði fyrir háskólann í Flórída, Florida State University, í fyrra.
Að útskrift lokinni hélt Dagný til Þýskalands þar sem hún varð Þýskalandsmeistari með Bayern München og hélt svo heim til Íslands þar sem hún lék með Selfoss, en Dagný er uppalinn Rangæingur.
„Dagný er kröftugur íþróttamaður sem þráir að gera sitt besta og vinna leiki,\" er meðal þess sem Mark Parsons, þjálfari Portland, hafði að segja um Dagnýju.

Heimild: Vefsíða Portland Thorns | SportTV