Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 26. október 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Dele Alli ekki valinn í hóp í kvöld
Mynd: Getty Images
The Athletic greinir frá því í dag að Dele Alli hafi ekki ferðast með leikmannahópi Tottenham í leikinn gegn Burnley í kvöld.

Alli er ekki meiddur en Jose Mourinho, stjóri Tottenham, ákvað að velja hann ekki í 18 manna hópinn.

Alli kom inn á sem varamaður í 3-0 sigrinum á LASK í Evrópudeildinni á fimmtudag en þar spilaði hann 30 mínútur.

Byrjun tímabils hefur verið erfið hjá Alli en hann hefur ekki verið í byrjunarliði Tottenham í ensku úrvalsdeildinni síðan í fyrstu umferð gegn Everton.

Undir lok félagaskiptagluggans var hann orðaður við brottför frá Tottenham en á endanum fór hann ekki neitt. Alli virðist hins vegar vera neðarlega í áætlunum Mourinho í augnablikinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner