Fotbolti.net
26.10.20 - 19:33
Ívan Guðjón Baldursson

Holland: Elías Már með tvennu í bikarnum

Holland: Elías Már með tvennu í bikarnum
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Excelsior 4 - 0 Helmond</b>
1-0 R. Niemeijer ('26)
2-0 Elías Már Ómarsson ('44)
3-0 Elías Már Ómarsson ('61)
4-0 J. Zwarts ('68)
Elías Már Ómarsson er búinn að finna skotskóna aftur og skoraði hann í fjórða leik Excelsior í röð er liðið rúllaði yfir Helmond í hollenska bikarnum í dag.

Elías Már skoraði tvennu í 4-0 sigri og er Excelsior komið í 32-liða úrslit bikarsins.

Elías hefur verið í fantaformi á tímabilinu og er kominn með 10 mörk í 9 leikjum í hollensku B-deildinni.

Elías er 25 ára gamall og gerði 8 mörk í 25 leikjum á sínu eina tímabili í efstu deild í Hollandi. Þar áður gerði hann 8 mörk í 12 leikjum með Göteborg í sænsku deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.