Mainoo fær nýjan samning - Goretzka og Gomes orðaðir við Man Utd - Bremer og Kerkez við Liverpool
Óli Kristjáns: Var súr að hafa ekki skorað
John um mistökin: Tek hana í 99 skipti af 100
Smá basl en „bikarinn er að fara í Fossvog"
Meira undir fyrir KA - „Vonandi muna flestir eftir tilfinningunni"
Úlfur: Þeir henda einum af sínum bestu mönnum viljandi í bann
Maggi: Menn þurfa fara fyrr úr vinnu og jafnvel skrópa í skóla
Elmar Kári: Ég bara missi hausinn þarna
Haddi: Töluðum um það eftir tapið í fyrra
Arnar Gunnlaugs: Eiginlega bara fáránlegt ef ég á að segja alveg eins og er
Kári Sigfússon: Get hent í einhver tiktok og fengið Eyþór Wöhler með mér
Árni Guðna: Veit ekki hverju ég get lofað þeim núna
Haraldur Freyr: Refsuðum og vorum skilvirkir
Nær martröðin að breytast í draum? - „98% af liðinu hefur gert þetta áður"
Arnar: Okkur hefur gengið vel að viðhalda hungrinu
Daði: Ólýsanleg tilfinning
Rúnar: Ekki það skemmtilegasta í heimi að tapa 6-0
Óskar Hrafn: Eins og klippt út úr Klaufabárðunum
Jökull: Grimmir og uppskárum eitt mark
Höskuldur: Þetta hafa alltaf bara verið eins og bikarúrslitaleikir
Ómar: Ógeðslega pirrandi að skora þrjú mörk og það dugi ekki einusinni til stigs
   fim 26. október 2023 20:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Dóri Árna: Gríðarlega súrt - Hann er stórhættulegur
Halldór Árnason.
Halldór Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Malick Fofana á sprettinum.
Malick Fofana á sprettinum.
Mynd: EPA
Auðvitað söknuðum við Lexa.
Auðvitað söknuðum við Lexa.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er ýmislegt sem fer úrskeiðis. Þetta er í fyrsta lagi ofboðslega gott lið, gríðarleg gæði í þeirra liði. Mér fannst við byrja leikinn ágætlega, fáum tvö göð færi til að komast yfir áður en þeir skora úr horni sem var eiginlega þeirra fyrsta tækifæri. Ofboðslega súrt mark að fá á sig; 'soft' mark úr föstu leikatriði sem brýtur ísinn" sagði Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, eftir leikinn gegn Gent í Sambandsdeildinni.

Lestu um leikinn: Gent 5 -  0 Breiðablik

Gent bætti við tveimur mörkum fljótlega og svo fjórða markinu áður en hálfleikurinn var úti. „Við vorum ágætlega undir það búnir hvernig þeir spila. Þeir spila með tvo framherja og svo 'tíu' sem vinna þannig að einn býður sig og hinir hlaupa á bakvið. Þeir dældu boltum aftur fyrir línuna okkar í dag, í 90% tilvika gerðum við ágætlega en í fjögur skipti sem það klikkar þá eru gæðin slík að þeir refsa."

„Sóknarlega fannst mér við gera á köflum ágætlega, komumst í góðar stöður. En það vantaði lokahnykkinn á sóknirnar okkar. Við þurfum að vera miklu beinskeyttari í þessum stöðum, eins og þeir voru."

„Þeir voru örlítið meira með boltann. Gæðamunurinn liggur í að þeir nýta færin sín hrikalega vel. Mér finnst eiginlega ótrúlegt að við höfum ekki náð að skora í þessum leik. Gríðarlega súrt að fá á sig fimm mörk, það var auðvitað ekki uppleggið eða planið."


Dóri var spurður út í fyrsta markið, mark úr hornspyrnu. „Ég átta mig ekki á því hvað fer úrskeiðis. Þetta er sama horn og þeir hafa alltaf tekið, við erum í maður á mann dekkningu með tvo lausa (til að hjálpa). Af einhverjum ástæðum þá endar hann einn á fjær. Ég þarf að skoða þetta betur. Mjög súrt að fá svona mark á sig."

Þetta var fyrsti keppnisleikur Breiðabliks undir stjórn Dóra. Hvernig var upplifunin á hliðarlínunni? „Það var fiðringur fyrir leik en um leið og leikurinn byrjar þá er það búið og maður blokkerar allt utanaðkomandi. Þetta er reynsla og mikill lærdómur sem við tökum út úr þessu."

Stórhættulegur leikmaður
Malick Fofana var fyrir aftan tvo fremstu menn í leiknum og náði að valda Blikum miklum usla. Kom hans staðsetning á óvart?

„Hann hefur yfirleitt verið út á væng eða annar af tveimur framherjum. Hann var alltaf fyrir neðan senterana tvo og hékk úti annað hvort hægra eða vinstra megin. Þeir náðu að yfirmanna aðra hvora hliðina þannig að Oliver lenti svolítið mitt á milli í fyrri hálfleik. Hann er frábær leikmaður, stórhættulegur."

Alexander átti að byrja
Alexander Helgi Sigurðarson var ekki með vegna veikinda í dag. Var planið að hann myndi byrja?

„Alexander átti að byrja. Oliver að koma upp úr meiðslum, stóð sig vel og gerði vel í krefjandi aðstæðum. Oliver stóð sig vel, en auðvitað söknuðum við Lexa, erum samt ekkert að pæla í því meira," sagði Dóri.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum neðst.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner