Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. nóvember 2020 18:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Katar: Al Arabi byrjar illa og er við botninn
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Qatar SC 3 - 0 Al Arabi

Al Arabi mætti í dag Qatar SC í sjöundu umferð deildarkeppninnar í Katar. Heimir Hallgrímsson er þjálfari Al Arabi, Freyr Alexandersson er aðstoðarþjálfari og Aron Einar Gunnarsson er leikmaður liðsins.

Aron lék allan leikinn er Al Arabi tapaði með þremur mörkum. Qatar SC var með sex stig fyrir leikinn og Al Arabi fimm.

Heimamenn leiddu með einu marki í hléi og skoruðu svo tvö mörk undir lok leiksins.

Al Arabi er með stigi meira en botnliðin tvö sem eiga leik til góða. Tapið í dag var þriðja tapið í síðustu þremur leikjum liðsins.
Athugasemdir
banner
banner