Joe Willock, 21 árs leikmaður Arsenal, var heppinn að sleppa heill úr umferðaróhappi en hann missti stjórn á Mercedes bifreið sinni. Hann misreiknaði sig á aðrein og endaði utan vegar.
Ökumaður sem var í bifreið sem var rétt fyrir aftan náði myndbandi af óhappinu og þar sést vel hversu heppinn Willock var.
„Ég vissi ekki hver þetta var. Honum var brugðið en í fínum málum," sagði ökumaðurinn.
Daily Mail birtir myndbandið og má sjá það hér að neðan.

Willock er enskur U21 landsliðsmaður. Hann hefur aðeins spilað einn úrvalsdeildarleik á þessu tímabili en er með tvö mörk í þremur leikjum í Evrópudeildinni.
Athugasemdir