Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 26. nóvember 2022 17:10
Aksentije Milisic
Segir að lið frá Afríku geti unnið HM
Mynd: Getty Images

Aliou Cisse, landsliðsþjálfari Senegal, segir að þetta gæti verið keppnin þar sem lið frá Afríku muni vinna Heimsmeistaramótið.


Senegal tapaði gegn Holland í fyrstu umferðinni en náði að svara með 3-1 sigri gegn Katar í öðrum leik sínum í gær. 

Senegal þarf að vinna Ekvador á þriðjudaginn til þess að komast upp úr A-riðlinum en Ekvador er taplaust til þessa.

„Já, þjóð frá Afríku getur unnið Heimsmeistaramótið og ég vona að það verði Senegal," sagði Cisse brattur.

„Ég vona að hinum Afríkuþjóðunum gangi vel og að þau komist langt á mótinu. Við finnum ekki fyrir neinni pressu. Eina pressan er sú sem kemur frá sjálfum okkur."

Langbesti leikmaður liðsins, Saido Mane, missir af öllum mótinu vegna meiðsla og þá meiddist Cheikhou Kouyaté í fyrsta leik liðsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner