Fotbolti.net
25.11.26 - 22:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bruno: Við vorum hræddir

Bruno: Við vorum hræddir
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Man Utd gerði 2-2 jafntefli gegn Sporting í Meistaradeildinni í kvöld. Bruno Fernandes skoraði bæði mörk Man Utd strax í upphafi seinni hálfleiks eftir að Luis Suarez hafði komið Sporting yfir í fyrri hálfleik.
„Við hefðum átt að reyna meira þegar við skoruðum mörkin í seinni hálfleik en þetta fór akkúrat öfugt, við lögðumst neðar. Við vorum svolítið hræddir um að fá á okkur annað mark," sagði Fernandes.

Suarez bjargaði stigi fyrir Sporting undir lokin þegar hann skoraði af stuttu færi en Senne Lammens missti boltann beint fyrir framan Suarez.

„Mistök eru hluti af fótbolta og þannig koma mörk. Allir verða að taka á sig það góða og slæma. Við þurfum að vera saman í þessu á slæmu augnablikunum og trúin á hver öðrum breytist ekki," sagði Fernandes.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.