Fotbolti.net
25.11.26 - 22:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Aron Einar innsiglaði sigur Qatar SC

Aron Einar innsiglaði sigur Qatar SC
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Einar Gunnarsson innsiglaði sigur Qatar SC á Al Nasr frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum í Meistaradeild Persaflóa í kvöld.
Qatar SC var marki yfir í hálfleik og Aron skoraði annað markið eftir um klukkutíma leik og tryggði liðinu 2-0 sigur.

Liðið er með fjögur stig eftir fjórar umferðir. Liðið er í 3. sæti í sínum riðli þegar tvær umferðir eru eftir. Tvö efstu liðin fara áfram og tvö af bestu liðunum sem hafna í þriðja sæti.

Qatar SC mætir Al Shahaniya í deildinni þann 29. nóvember. Qatar SC er í næst neðsta sæti, stigi á eftir Al Shahaniya.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.