Fotbolti.net
26.11.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gordon sjóðandi heitur í Bakú - „Þarf að flytja hingað"

Gordon sjóðandi heitur í Bakú - „Þarf að flytja hingað"
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Anthony Gordon líður vel í Bakú í Aserbaísjan en hann skoraði tvennu í 4-1 sigri Barcelona gegn Sabah í Meistaradeildinni í gær.

Hann skoraði fjögur mörk gegn Qarabag fyrir Newcastle í febrúar á þessu ári.
„Ég þarf kannski að flytja hingað einn daginn. Ég hef náð góðum árangri hér. Frábær leikur í dag, tvö mörk svo ég er ánægður en mögulega hefði ég getað skorað þrennu svo það er enn mikil vinna framundan," sagði Gordon.

Gordon hefur alls skorað 13 mörk í 23 leikjum í Meistaradeildinni á ferlinum. Af Englendingum skorað Kane fleiri mörk í fyrstu 23 leikjum sínum eða 18 talsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.