26.11.26 - 10:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pochettino tjáði sig um dómgæsluna án þess að segja orð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mauricio Pochettino, stjóri United, var augljóslega mjög ósáttur við dómgæsluna í leik Sporting og Manchester United í Meistaradeidlinni í gær. Jöfnunarmark United í fyrri hálfleik fékk ekki að standa og fleiri vafaatriði féllu á móti United.
Argentínki stjórinn var spurður út í ákvörðun dómara leiksins að dæma brot á Youri Tielemans í aðdraganda marks Amad Diallo sem fékk ekki að standa.
Pochettino einfaldlega sýndi svipbrigði og benti á andlitið á sér og kinkaði svo kolli eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan.
Hann fékk svo spurningu um Senne Lammens í marki United en Belginn gerði tvö slæm mistök í leiknum sem endaði með 2-2 jafntefli. Hann var brotlegur og gaf vítaspyrnu þegar Sporting komst yfir í leiknum og missti svo boltann eftir fyrirgjöf þegar Sporting jafnaði á 80. mínútu.
„Svona hlutir gerast í fótbolta. Varðandi fyrstu spurninguna, það er erfitt að svara því ég held að allir sáu að það er erfitt að skilja af hverju þetta gerðist. Fótbolti snýst um mistök, ég mun alltaf styðja við mína leikmenn. Í þessu tilviki (seinna markinu), þá snýst þetta um ábyrgð. Varnarlínan verður líka að vera á verði, við þurfum að bæta okkur í smáatriðum."

TENGT EFNI
„Erfitt að hugsa sér verri dómaraákvörðun árið 2026"
Mauricio Pochettino didn't need to speak to convey his thoughts on the officials in Man Utd's draw with Sporting ???? https://t.co/0zX22E46cm
— Match of the Day (@BBCMOTD) November 26, 2026

Mynd: EPA