Fotbolti.net
27.01.13 - 09:30
Hafliði Breiðfjörð

Dagmar Ýr Arnardóttir í Fram (Staðfest)

Dagmar eftir undirskriftina.

Dagmar eftir undirskriftina.

Canon

Mynd: Fram

Kvennaboltinn
Dagmar Ýr Arnardóttir hefur gengið til liðs við lið Fram sem leikur í 1. deild kvenna.
Dagmar Ýr spilaði með liðinu á síðasta tímabili sem lánsmaður frá Breiðablik.

Dagmar Ýr átti stóran þátt í frábæru gengi meistaraflokks kvenna á síðastliðnu tímabili, hún spilaði alls níu leiki og skoraði í þeim sjö mörk.

Hún hefur spilað með meistaraflokki Breiðabliks frá 2002 og spilaði 76 leiki og skoraði níu mörk á þeim tíma.

,,Ljóst er að þetta er mikil liðsstyrkur fyrir meistaraflokkinn sem ætlar sér stóra hluti á komandi tímabili,\" sagði í tilkynningu frá Fram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.