Fotbolti.net
27.01.13 - 11:02
Hafliði Breiðfjörð

Diego Lopez til Real Madrid í stað Casillas (Staðfest)

Diego Lopez er kominn aftur til Real Madrid og á að leysa stöðu Iker Casillas sem verður frá keppni í tvo til þrjá mánuði vegna meiðsla.

Diego Lopez er kominn aftur til Real Madrid og á að leysa stöðu Iker Casillas sem verður frá keppni í tvo til þrjá mánuði vegna meiðsla.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid keypti í gær markvörðinn Diego Lopez frá Sevilla til að leysa stöðu Iker Casillas sem er meiddur.
Real Madrid sagði á vef félagsins að Lopez hafi skrifað undir samning sem gildir út tímabilið 2016-2017 en kaupverð er ekki gefið upp.

Lopez mætti strax á æfingu hjá Real Madrid í gær eftir að hafa farið í læknisskoðun og skrifað undir samninginn. Hann verður í hópnum gegn Getafe í dag.

,,Þetta gerðist allt svo hratt, ég þarf tíma til að meðtaka þetta,\" sagði Lopez. ,,Ég er kominn aftur til míns félags, þar sem hjarta mitt slær, þar sem ég ólst upp og lærði allt mitt.\"

Madrid sagði einnig að Casillas hafi farið heim af sjúkrahúsi í gærmorgun eftir að hafa gengist undir aðgerð á vinstri hendi sem hann braut í leik á miðvikudaginn. Hann verður frá í tvo til þrjá mánuði.

Lopez kom upp úr unglingastarfi Real Madrid og spilaði lítið með aðalliðinu áður en hann fór til Villarreal þar sem hann var 2007-2012. Hann er 31 árs gamall og fór til Sevilla síðasta sumar en spilaði lítið á fyrri hluta tímabilsins.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.