Fotbolti.net
27.01.13 - 10:30
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Wigan lánar Mauro Boselli til Palermo (Staðfest)

Mauro Boselli.

Mauro Boselli.

Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Mauro Boselli hefur gengið í raðir Palermo frá Wigan á láni og mun leika með liðinu út tímabilið.
Þessi argentínski leikmaður hefur átt í erfiðleikum með að skora fyrir Wigan, en hann gekk í raðir félagsins árið 2010 fyrir sex milljónir punda. Hann á enn eftir að skora sitt fyrsta úrvalsdeildarmark.

Boselli hefur frá því hann kom til Wigan leikið með Genoa og Estudiantes sem lánsmaður og er Palermo því þriðja félagið sem hann er lánaður til.

Hann var ekki í leikmannahópi Wigan sem lagði Macclesfield að velli í FA-bikarnum í gær, en Roberto Martinz, stjóri Wigan, staðfesti eftir leik að lánssamningurinn hefði verið frágenginn í gærmorgun og var hann því ekki með liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.