Fotbolti.net
27.01.14 - 19:53
Brynjar Ingi Erluson

Andri Freyr Sveinsson í KF (Staðfest)

Andri Freyr Sveinsson í KF (Staðfest)
Canon

Mynd: KF

KF í 2. deild karla hefur fengið vænan liðsstyrk fyrir komandi átök í sumar en Andri Freyr Sveinsson er kominn aftur til félagsins frá Fram.
Andri, sem er 19 ára gamall, er uppalinn á Siglufirði og hafði leikið með KF undanfarin ár áður en hann flutti til Reykjavíkur.

Hann samdi þá við Fram í Pepsi-deildinni en hann var meðal annars fyrirliði hjá 2. flokki félagsins síðasta sumar. Seinni hluta tímabilsins var hann hinsvegar á láni hjá KA í 1. deildinni.

Þá var hann iðulega á tréverkinu hjá meistaraflokknum hjá Fram en hann hefur nú gert tveggja ára samning við KF.

Hann á að baki 19 leiki með KF en fyrsta leik sinn spilaði einungis 15 ára gamall. KF er afar ánægt með að vera komið með Andra aftur til félagsins.

Í tilkynningu KF kemur einnig fram að Andri kemur til með að vera mikilvægur hlekkur í ungu liði félagsins næsta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.