Fotbolti.net
27.01.14 - 12:23
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Michael Essien til AC Milan (Staðfest)

Michael Essien.

Michael Essien.

Canon

Mynd: Getty Images

AC Milan og Chelsea hafa staðfest að Michael Essien er orðinn leikmaður ítalska félagsins.

Essien féll á læknisskoðun um helgina en fór þá í ítarlegri skoðun og stóðst hana.
Ganverjinn skrifaði í morgun undir 18 mánaða samning við Milan og verður kynntur á fjölmiðlafundi á morgun.

Essien er 31 árs og hefur með Chelsea unnið ensku úrvalsdeildina tvívegis, FA-bikarinn fjórum sinnum og Meistaradeildina einu sinni. Hann var valinn leikmaður ársins hjá Chelsea árið 2007.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.