27.01.14 - 15:17
Daníel Freyr Jónsson
Rúnar Alex til Nordsjælland (Staðfest)

Rúnar Alex Rúnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Alex Rúnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danska úrvalsdeildarliðið Nordsjælland hefur staðfest að félagið hafi fengið til sín markvörðinn Rúnar Alex Rúnarsson frá KR.
Þessi 18 ára gamli leikmaður skrifaði undir fjögurra ára samning hjá félaginu.
Fótbolti.net greindi frá því fyrr í þessum mánuði að félagaskiptin væru yfirvofandi en Nordsjællandi var ekki eitt um að vilja fá Rúnar Alex í sínar raðir.

Rúnar Alex komst fyrst í sviðsljósið fyrir frammistöðu sína með KR í nokkrum leikjum síðasta sumar, þá sérstaklega er hann kom inná gegn FH og varði vítaspyrnu í leik sem var afar mikilvægur fyrir liðið sem varð svo síðar Íslandsmeistari.
KR munu núna þurfa að leita að markverði fyrir sumarið þar sem Hannes Þór Halldórsson er einnig farinn frá félaginu.
KR munu núna þurfa að leita að markverði fyrir sumarið þar sem Hannes Þór Halldórsson er einnig farinn frá félaginu.