27.01.16 - 18:53
Magnús Már Einarsson
Andros Townsend til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle hefur keypt kantmanninn Andros Townsend frá Tottenham á tólf milljónir punda.
Hinn 24 ára gamli Townsend krotaði undir fimm ára samning hjá Newcastle.
Townsend var kominn í enska landsliðið í fyrra en á þessu tímabili hefur hann einungis leikið þrjá leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Hann ákvað því að fara frá uppeldisfélagi sínu Tottenham þegar tilboðið kom frá Newcastle.

„Um leið og ég heyrði að Newcastle hefði áhuga á mér þá var það eini staðurinn sem ég vildi fara á. Ég get ekki beðið eftir að byrja,\" sagði Townsend.