Fotbolti.net
27.01.16 - 18:30
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Fredy Guarin til Shanghai Shenhua (Staðfest)

Spilar í Kína

Spilar í Kína

Canon

Mynd: Getty Images

Kólumbíski miðjumaðurinn Fredy Guarin hefur yfirgefið ítalska úrvalsdeildarliðið Inter Milan fyrir kínverska úrvalsdeildarlið Shanghai Shenhua.
Guarin hefur leikið með Inter undanfarin fjögur ár og spilað 16 leiki á yfirstandandi leiktíð.

Þessi 29 ára gamli leikmaður gekkst undir læknisskoðun hjá kínverska liðinu á Spáni í dag en þar dvelur liðið við æfingar þessa dagana. Kaupverðið er talið vera í kringum 12 milljónir evra.

Shanghai Shenhua lenti í 5.sæti kínversku deildarinnar á síðustu leiktíð en leikmenn á borð við Tim Cahill og Demba Ba eru samningsbundnir liðinu.

Kínversk lið eru í óða önn að sækja sér stjörnur til Evrópu þessa dagana en eins og við greindum frá fyrr í dag er brasilíski miðjumaðurinn Ramires farinn frá Englandsmeisturum Chelsea til Sölva Geirs og félaga í Jiangsu Suning.

Þá gekk Gervinho í raðir Hebei Fortune frá Roma á dögunum.

Damos la bienvenida a nuestro jugador @fguarin13 al #ShanghaiShenhua al que se incorpora con ilusión y ganas. pic.twitter.com/uddqcL4aL1

— Gregorio Manzano (@grmanzano) January 27, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.