27.01.16 - 20:40
Arnar Geir Halldórsson
Lamine Kone til Sunderland (Staðfest)

Sáttur

Mynd: Getty Images

Sáttur

Mynd: Getty Images
Fílbeinsstrendingurinn Lamine Kone er genginn til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Sunderland frá franska úrvalsdeildarliðinu Lorient.
Kaupverðið er óuppgefið en þessi 27 ára gamli miðvörður gerir samning til ársins 2020.
Kone fæddist í Frakklandi og hefur leikið allan sinn feril þar en hann var lykilmaður í vörn Lorient þegar liðið lenti í 16.sæti Ligue 1 á síðustu leiktíð.
„Það að styrkja varnarleikinn var í forgangi hjá okkur og Lamine er leikmaður sem hefur heillað mig mikið.\"
Hann er stór og sterkur sem eru eiginleikar sem þú þarft að hafa til að spila sem miðvörður í ensku úrvalsdeildinni,\" sagði Sam Allardyce, stjóri Sunderland þegar tilkynnt var um kaupin.
Sunderland er í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 19 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti.