27.01.16 - 07:00
Óðinn Svan Óðinsson
Marcus Olsson til Derby (Staðfest)

Marcus Olsson

Mynd: Getty Images

Marcus Olsson

Mynd: Getty Images
Derby County hefur komist að samkomulagi við Blackburn Rovers um kaup á sænska varnarmanninum Marcus Olsson.
Olsson fer til Derby fyrir óuppgefna upphæð en hann er 27 ára vinstri bakvörður sem leikið hefur með Blackburn frá árinu 2012.

Olsson er þriðji leikmaðurinn sem Derby fær í janúarglugganum en áður hafði liðið fengið þá Nick Blackman og Abdoul Camara.
Leikmaðurinn gerir þriggja og hálfs árs samnning við Derby en liðið situr í 5. sæti ensku Championship deildarinnar og stefnir á sæti í ensku úrvalsdeildinni að ári.