27.01.16 - 14:17
Magnús Már Einarsson
Ramires til Jiangsu Suning (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Kínverska félagið Jiangsu Suning hefur keypt miðjumanninn Ramires frá Chelsea. Talið er að kaupverðið sé í kringum 25 milljónir punda.
Hinn 28 ára gamli Ramires kom til Chelsea árið 2010 og skoraði 34 mörk í 251 leik með félaginu.
Jiangsu er stórhuga fyrir komandi tímabil í Kína en félagið er tilbúið að eyða háum fjárhæðum í leikmenn.
Dan Petrescu þjálfar Jiangsu en hann er fyrrum leikmaður Chelsea.
Viðar Örn Kjartansson og Sölvi Geir Ottesen eru á mála hjá Jiangsu en sá fyrrnefndi er að ganga til liðs við Malmö eftir nokkrar mínútur.