Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 27. janúar 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Man Utd ennþá í viðræðum um Bruno Fernandes
Mynd: Getty Images
Manchester United er ennþá í viðræðum við Sporting Lisabon um kaup á miðjumanninum Bruno Fernandes.

Sporting Lisabon vill fá 55 milljónir punda fyrir Fernandes en United ku vera tilbúið að borga rúmlega 46 milljónir punda.

Viðræður standa ennþá yfir en Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, vill fá liðsstyrk áður en félagaskiptaglugginn lokar á föstudag.

Sporting Lisabon mætir Maritimo í kvöld en Silas, þjálfari Sporting, hefur staðfest að Bruno Fernandes muni spila þann leik.
Athugasemdir
banner
banner