Fotbolti.net
27.01.20 - 14:30
Elvar Geir Magnússon

Ronaldinho heldur ekki vatni yfir Martinelli

Gabriel Martinelli.

Gabriel Martinelli.

Canon

Mynd: Getty Images

Ronaldinho hefur gríðarlega trú á Gabriel Martinelli, sóknarleikmanni Arsenal. Hann telur að þessi brasilíski táningur gæti orðið einn sá besti í heiminum.

„Við Brasilíumenn erum mjög spenntir yfir honum og hans framtíð. Það er eitt að hafa hæfileikana en annað að vera með þetta sjálfstraust 18 ára," segir Ronaldinho sem var magnaður leikmaður á sínum tíma.
„Hann minnir mig á Ronaldo á hans fyrsta tímabili í Evrópu. Hann óttast ekkert, sama hver andstæðingurinn er. Hann vill bara fá boltann og skora mörk."

„Ronaldo varð besti leikmaður heims og Martinelli gæti stefnt á það sama."

Martinelli er fyrsti táningur hjá Arsenal til að skora tíu mörk í öllum keppnum síðan Nicolas Anelka náði því. Þessi spennandi leikmaður verður í eldlínunni með Arsenal gegn Bournemouth í bikarleik í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.