Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 27. janúar 2021 20:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjarnafæðismótið: Þór skoraði sjö gegn Húsvíkingum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Völsungur 0 - 6 Þór
0-1 Ólafur Aron Pétursson
0-2 Jóhann Helgi Hannesson
0-3 Jakob Snær Árnason
0-4 Sigurður Marinó Kristjánsson
0-5 Jakob Snær Árnason
0-6 Sigurður Marinó Kristjánsson
0-7 Ásgeir Marinó Baldvinsson

Þór Akureyri lék sér að Völsungi þegar liðin áttust við í Kjarnafæðismóti karla í kvöld.

Ólafur Aron Pétursson og Jóhann Helgi Hannesson voru á skotskónum fyrir Þórsara í fyrri hálfleiknum og var staðan 2-0 í hálfleik fyrir Þór.

Það gekk enn betur hjá Þór í seinni hálfleiknum og tókst þeim að skora fimm mörk til viðbótar. Lokatölur 7-0 fyrir Þórsara, sem leika í Lengjudeildinni. Sigurður Marinó Kristjánsson og Jakob Snær Árnason skoruðu báðir tvennu fyrir Þór í seinni hálfleik. Ásgeir Marinó Baldvinsson var einnig á skotskónum.

Þór er búið að vinna báða leiki sína í mótinu til þessa með markatölunni 7-0. Leikirnir hafa verið gegn Magna og Völsungi, sem leika í 2. deild næsta sumar. Leikurinn í kvöld var fyrsti leikur Völsungs í mótinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner