Manchester United hefur samþykkt lánstilboð Rangers í vængmanninn Amad Diallo. Diallo er nítján ára gamall og kom til Manchester frá Atalanta fyrir einu ári síðan.
Rangers fær Fílbeinstrendinginn á láni út yfirstandandi tímabil
Rangers fær Fílbeinstrendinginn á láni út yfirstandandi tímabil
Hann hefur afskaplega lítið spilað með United á tímabilinu en var þó í byrjunarliðinu í Meistaradeildarleiknum gegn Young Boys fyrir áramót.
Fyrsti leikur Diallo gæti verið gegn Ross County um helgina.
„Ég er mjög ánægður að vera kominn til Rangers. Þetta er frábært tækifæri mig á þessu stigi ferilsins að koma í svona stórt félag þar sem áskorarnir eru margar og ég mun fá æðislegt tækifæri til að prófa sjálfan mig á mörgum sviðum. Ég hlakka til að æfa með liðsfélögunum í fyrsta sinn á morgun og hlakka til að hitta stuðningsmenn þegar við mætum Ross County á laugardag," sagði Amad.
Athugasemdir