Fotbolti.net
27.02.14 - 11:49
Magnús Már Einarsson

Farid Zato í Þór (Staðfest)

Farid Zato í Þór (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Farid Zato hefur skrifað undir eins árs samning við Þórsara og mun leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.

Þessi 21 árs gamli miðjumaður sýndi fína takta með Víkingi Ólafsvík síðastliðið sumar og var meðal annars verðlaunaður með sæti í landsliði Tógó.

Mörg íslensk félög hafa sýnt Farid áhuga í vetur en hann æfði meðal annars með KR-ingum í síðustu viku. Á endanum náðu Þórsarar hins vegar að krækja í kappann.
,,Við erum rosalega ánægðir með þetta. Við erum búnir að vera í viðræðum við hann síðan í október,\" sagði Magnús Eggertsson í leikmannaráði Þórs við Fótbolta.net í dag.

,,Hann hefur skiljanlega verið að skoða aðra möguleika erlendis auk þess sem hann var á reynslu hjá KR. Við erum búnir að bíða eftir þessu í fjóra mánuði og erum gríðarlega ánægðir,\"

Þórsarar hafa einnig krækt í Þórð Birgisson, Sandor Matus, Arnþór Hermannsson og Hjört Geir Heimisson í vetur en Magnús segir að þeir séu ekki hættir á leikmannamarkaðinum.

,,Við þurfum aðeins að styrkja okkur meira. Það er stefnan, en við ætlum að velja rétt. Það verða ekki margir leikmenn en þeir verða góðir,\" sagði Magnús.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.