27.02.16 - 15:40
Magnús Már Einarsson
Emil Ásmunds í Fylki (Staðfest)

Hermann Hreiðarsson þjálfari Fylkis og Emil bregða á leik eftir undirskrift.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Emil Ásmundsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Fylki. Emil sem er 21 árs miðjumaður og uppalinn í félaginu snýr nú aftur í Árbæinn eftir dvöl hjá Brighton í Englandi.
Eftir að hafa stimplað sig inn í Fylkisliðið undir lok tímabils árið 2012 aðeins sautján ára gekk Emil í raðir Brighton í byrjun árs 2013.
Eftir að hafa leikið með vara og unglingaliði Brighton spilaði Emil sinn fyrsta leik með aðalliðinu sumarið 2014.
Skömmu síðar lenti hann í erfiðum meiðslum sem héldu honum utan vallar í rúmlega ár. Dvöl hans hjá Brighton lauk svo í lok síðasta árs og sneri hann í kjölfarið heim til Íslands og hóf æfingar með Fylki.
Emil hefur leikið tólf leiki með U-19 ára landsliði Íslands og skorað eitt mark og þrettán leiki með U-17 ára landsliðinu og skorað í þeim tvö mörk.
„Knattspyrnudeild Fylkis lýsir yfir mikilli ánægju með að ná samkomulagi við þennan stórefnilega leikmann,\" segir í yfirlýsingu frá Fylki.