Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 27. febrúar 2020 23:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir Arsenal: Mustafi skástur - Margir fjarkar
Mynd: Getty Images
Football.London tók saman einkunnagjöf leikmanna Arsenal fyrir frammistöðu þeirra gegn Olympiakos í Evrópudeildinni.

Arsenal er úr leik eftir 1-2 tap á heimavelli. Arsenal leiddi eftir fyrri viðureignina en mark eftir hornspyrnu jafnaði einvígið fyrir Olympiakos. Aðeins eitt mark var skorað í venjulegum leiktíma og því var framlengt.

Pierre-Emeric Aubameyang skoraði glæsilegt mark á 113. mínútu en Youssef El Arabi skoraði dramatískt sigurmark á 119. mínútu. Aubameyang fékk þá dauðafæri á 123. mínútu en skaut framhjá.

Einkunnagjöf Football.London:
Bernd Leno - 4
Hector Bellerin - 4
Skhodran Mustafi - 7
David Luiz - 4
Bukayo Saka - 5

Dani Ceballos - 6
Granit Xhaka - 4
Nicolas Pepe - 6
Mesut Özil - 4

Aubameyang - 5
Alexandre Lacazette - 4

Varamenn:
Lucas Torreira - 5
Joe Willock - 5
Sokratis - 5
Gabriel Martinelli - 6
Athugasemdir
banner
banner
banner