Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 27. febrúar 2021 14:56
Victor Pálsson
Einkunnir Man City og West Ham - Dias bestur
Mynd: Getty Images
Ruben Dias var valinn maður leiksins í dag er Manchester City mætti West Ham í hörkuleik í ensku úrvalsdeildinni.

Leiknum lauk með 2-1 sigri Man City sem hefur nú unnið 14 deildarleiki í röð sem er ótrúlegur árangur.

Dias skoraði fyrra mark Man City í sigrinum en félagi hans í hjarta varnarinnar, John Stones, gerði það seinna.

Þeir félagar fá báðir átta í einkunnagjöf Sky Sports og voru bestu menn vallarins.

Hér má sjá einkunnirnar.

Man City: Ederson (5), Walker (6), Dias (8), Stones (8), Zinchenko (7), Gundogan (6), Fernandinho (6), Mahrez (6), De Bruyne (7), Torres (6), Aguero (5)

Varamenn: Gabriel Jesus (6), Foden (6)

West Ham: Randolph (6), Johnson (5), Coufal (7), Dawson (7), Diop (6), Cresswell (6), Soucek (6), Rice (6), Lingard (7), Fornals (6), Antonio (7)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner