Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. febrúar 2021 19:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
England: Mark El Ghazi dugði gegn Leeds
Mynd: Getty Images
Leeds 0 - 1 Aston Villa
0-1 Anwar El Ghazi ('5 )

Eitt mark dugði Aston Villa til sigurs á útivelli gegn Leeds í kvöld. Markið kom strax á 5. mínútu og var það Anwar El Ghazi sem skoraði eftir undirbúning Ollie Watkins.

Leeds hélt boltanum 70% af leiktímanum í dag en það dugði einungis til að ná þremur skotum á mark andstæðinganna.

Þetta var fyrsti sigur Aston Villa frá sigrinum gegn Arsenal í byrjun mánaðar og tapið það þriðja í síðustu fjórum leikjum hjá Leeds.

Aston Villa er í 8. sæti með 39 stig en Leeds er með 35 stig í 10. sæti. Aston Villa á tvo leiki til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner