Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. febrúar 2021 10:45
Victor Pálsson
Firmino er uppáhalds samherjinn - „Ég vil þakka þér, Bobby"
Mynd: Getty Images
Roberto Firmino er uppáhalds samherji Sadio Mane hjá Liverpool en sá síðarnefndi staðfesti það í viðtali í gær.

Firmino er þekktur fyrir það að vera mikill samherji en hann leggur upp mörg mörk á bæði Mane og Mohamed Salah í sóknarlínu Liverpool.

Mane og Salah eru mögulega eigingjarnari leikmenn en Firmino sem er meira í því að leggja upp mörk frekar en að skora þau.

„Ég veit ekki en á þessu ári hefur hann enn ekki lagt upp mark fyrir mig," sagði Mane við ESPN í Brasilíu.

„Ég spyr af hverju hann sé ekki búinn að því og hann svarar að hann hafi nú þegar gert það! Auðvitað hefur hann lagt upp mikið af mörkum fyrir mig."

„Ég þakka þér, Bobby, í næstu leikjum þá mun ég gera allt til að gefa þér stoðsendingu. Hann á skilið meira hrós en ég og Mo Salah, klárlega."

„Hann gerir allt auðveldara fyrir okkur. Brasilía er heppin að eiga Firmino. Ég elska hann. Hann er minn uppáhalds samherji, ég elska hann."
Athugasemdir
banner
banner