Framherjinn Raul Jimenez mun snúa aftur á völlinn á þessu tímabili að sögn stjóra Wolves, Nuno Santo.
Jimenez hefur ekkert leikið síðan í nóvember en hann höfuðkúpubrotnaði þá í leik gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.
Nuno ræddi stöðu leikmannsins á blaðamannafundi í gær og sagðist vera viss um að Mexíkóinn myndi spila aftur á tímabilinu.
Jimenez er einn allra mikilvægasti leikmaður Wolves sem hefur saknað hans sárt í fremstu víglínu.
Leikmaðurinn er nýlega byrjaður að æfa á ný en samkvæmt Nuno lítur hann betur út á hverjum degi.
Það eru 13 leikir eftir hjá Wolves á tímabilinu en sá fyrsti er gegn Newcastle í kvöld.
Athugasemdir