Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 27. febrúar 2021 20:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lengjubikarinn: Ellert setti þrennu á Stólana
Ein eldgömul af Ellerti
Ein eldgömul af Ellerti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Augnablik 4 - 0 Tindastóll
1-0 Ellert Hreinsson ('50, víti)
2-0 Ellert Hreinsson ('75)
3-0 Ellert Hreinsson ('78)
4-0 Brynjar Óli Bjarnason ('85)

Ellert Hreinsson skoraði þrennu þegar Augnablik vann 4-0 sigur á Tindastóli í B-deild Lengjubikarsins í kvöld. Liðin leika í riðli 3 og var leikið í Fífunni.

Mörkin komu öll í seinni hálfleik og kom það fyrsta úr vítaspyrnu. Ellert skoraði fyrstu þrjú mörkin en Brynjar Óli Bjarnason innsiglaði sigurinn á 85. mínútu með lokamarki leiksins.

Bæði lið töpuðu sínum leik í 1. umferð riðilsins og því er Augnablik nú með þrjú stig og Stólar áfram án stiga.
Athugasemdir
banner
banner