Bielsa farinn frá Leeds (Staðfest) - Nýr stjóri tilkynntur á morgun


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Marcelo Bielsa og Leeds United hafa komist að samkomulagi um að hann stýri ekki liðinu áfram. Þessu greinir félagið frá í tilkynningu sem kom út nú rétt í þessu.
Gengi Leeds upp á síðkastið hefur verið afleitt og er liðið í bullandi fallbaráttu. Liðið hefur tapað síðustu tveimur leikjum samanlagt 0-10, leikjum gegn Liverpool og Tottenham.
Bielsa er dáður og dýrkaður af stuðningsfólki þar sem hann kom félaginu aftur upp í deild þeirra bestu og vildu margir af stuðningsmönnum Leeds sjá hann fá tækifærið til þess að bjarga þessu tímabili. Svo verður ekki.
„Leeds United getur staðfest að nú skilja leiðir félagsins og Marcelo Bielsa."
„Það er leiðinlegt að þetta þurfti að enda svona. Bielsa hefur breytt þessu félagi og gert magnaða hluti. Hins vegar eru sigrarnir aðeins fimm í deildinni á þessari leiktíð og við þurfum að gera breytingar. Ég vil þakka Marcelo fyrir allt það sem hann hefur gefið til félagsins og óska ég honum alls hins besta í framtíðinni," sagði Victor Orta, yfirmaður fótboltamála hjá Leeds.
Bandaríkjamaðurinn Jesse Marsch er efstur á óskalista Leeds og talið er að hann verði tilkynntur á morgun.
