Fotbolti.net
27.03.13 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Aruna Dindane til Crystal Palace (Staðfest)

Aruna Dindane til Crystal Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Crystal Palace hefur fengið liðsstyrk fyrir lokasprettinn í ensku Championship deildinni en félagið hefur samið við framherjann Aruna Dindane.
Dindane kemur frítt til Crystal Palace eftir að hafa yfirgefið Al-Saliliya Sports í Katar í desember síðastliðnum.

Þessi 32 ára gamli leikmaður þekkir til á Englandi eftir að hafa leikið með Portsmouth tímabilið 2009/2010.

Crystal Palacer er í fjórða sæti í ensku Championship deildinni og í harðri baráttu um sæti í úrvalsdeildinni.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.