Fotbolti.net
27.03.13 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Davíð, Hilmar og Jóhann Páll í KV (Staðfest)

Úr leik hjá KV í fyrra.

Úr leik hjá KV í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KV hefur fengið þrjá nýja leikmenn til liðs við sig að undanförnu fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.
Davíð Steinn Sigurðarson kemur á láni til KV frá Víkingi Reykjavík en hann var einnig á láni í Vesturbænum í fyrra.

Davíð, sem er miðjumaður fæddur 1992, lék 13 leiki með KV í fyrra og skoraði eitt mark.

Hlmar Ragnarsson er tvítugur miðvörður sem er lánaður frá ÍBV

Jóhann Páll Ástvaldsson, fæddur 1991, er bakvörður sem gengur til liðs við KV frá Völsungi. Hann lék 11 leiki með Húsvíkingum í 2. deildinni í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.