Fotbolti.net
27.03.14 - 15:00
Magnús Már Einarsson

Albert Riera til Watford og Udinese (Staðfest)

Albert Riera til Watford og Udinese (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Albert Riera, fyrrum kantmaður Liverpool, hefur gert samning við Watford sem gildir út tímabilið.

Þessi 31 árs gamli Spánverij losnaði undan samningi hjá Galatasaray í janúar síðastliðnum.

Á dögunum samdi hann við Udinese á Ítalíu um að ganga í raðir félagsins í sumar.
Riera mun hins vegar leika með Watford í Championship deildinni út þetta tímabil.

Pozzo fjölskyldan á bæði Udinese og Watford en ekki er útilokað að ítalska félagið láni Riera til Watford á næsta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.