27.03.14 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Árni Arnarson í HK (Staðfest)


Mynd: Valgeir Kárason


Mynd: Valgeir Kárason
HK hefur fengið miðjumanninn Árna Arnarson til liðs við sig frá Tindastóli.
Árni er uppalinn hjá Tindastóli og hefur leikið allan sinn feril með liðinu.
Árni er uppalinn hjá Tindastóli og hefur leikið allan sinn feril með liðinu.
Hann hefur samtals skorað fimm mörk í 96 deildar og bikarleikjum með Stólunum en í fyrra spilaði þessi 21 árs gamli leikmaður 15 leiki í 1. deildinni.
Árni var í fréttum á Englandi í síðustu viku þegar hann og Atli bróðir hans fengu mynd af sér með Yaya Toure á leik hjá Manchester United.
Árni var í fréttum á Englandi í síðustu viku þegar hann og Atli bróðir hans fengu mynd af sér með Yaya Toure á leik hjá Manchester United.
