27.03.14 - 12:08
Magnús Már Einarsson
Halilovic til Barcelona í sumar (Staðfest)

Halilovic þykir vera mikið efni.

Mynd: Getty Images

Halilovic þykir vera mikið efni.

Mynd: Getty Images
Barcelona hefur staðfest að hinn efnilegi Alen Halilovic muni koma til félagsins frá Dinamo Zagreb í sumar.
Þessi 17 ára gamli leikmaður mun gera fimm ára samning við Barcelona.
Þessi 17 ára gamli leikmaður mun gera fimm ára samning við Barcelona.
Mörg stórlið í Evrópu höfðu áhuga á Halilovic en þar á meðal var Manchester City. Hann ákvað hins vegar að velja Barcelona.
,,Það er erfitt að finna orð til að lýsa því hvernig mér líður,\" sagði Halilovic í dag eftir að greint var frá samningnum.
,,Auðvitað er Barcelona eitthvað sérstakt. Ég hef elskað félagið síðan ég var strákur og það er heiður að fá að spila með þeim.\"

Heimild: Goal