Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 27. mars 2020 14:24
Elvar Geir Magnússon
Munu Vidal og Braithwaite yfirgefa Barcelona í sumar?
Arturo Vidal.
Arturo Vidal.
Mynd: Getty Images
Barcelona er tilbúið að selja Arturo Vidal í sumar en Inter hefur áhuga á að kaupa hann.

Sílemaðurinn hefur aðeins byrjað 13 leiki í öllum keppnum á þessu tímabili og sagt að hann vilji fara í leit að meiri spiltíma.

Eftir að Barcelona fékk Frenkie De Jong þá fór Vidal aftar í goggunarröðina.

Diario Sport segir að Barcelona sé búið að setja verðmiða á sóknarmanninn Martin Braithwaite. Everton og West Ham eru sögð hafa áhuga á leikmanninum.

Börsungar fengu umdeilda undanþágu til að kaupa sóknarmann og keyptu Braithwaite frá Leganes.
Athugasemdir
banner
banner