27.04.16 - 19:08
Arnar Geir Halldórsson
Jónatan aftur í ÍR á láni (Staðfest)

Mættur aftur í ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mættur aftur í ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kantmaðurinn Jónatan Hróbjartsson hefur verið lánaður frá Pepsi deildarliði Fjölnis til 2.deildarliðs ÍR.
Jónatan gerði tveggja ára samning við Fjölni í byrjun þessa árs eftir að hafa komið frá ÍR en hann skoraði sex mörk í tuttugu leikjum í 2. deildinni síðastliðið sumar þegar ÍR lenti í þriðja sæti deildarinnar.
Hann hefur nú verið lánaður aftur til uppeldisfélagsins og mun leika með ÍR í sumar.
Jónatan kom við sögu í öllum leikjum Fjölnis í Reykjavíkurmótinu og Lengjubikarnum í vetur og skoraði í þeim eitt mark.
ÍR hefur leik í 2.deildinni þann 6.maí næstkomandi þegar Grótta heimsækir Hertz völlinn.