Fotbolti.net
27.04.16 - 17:17
Magnús Már Einarsson

Loic Ondo í Fjarðabyggð (Staðfest)

Loic Ondo.

Loic Ondo.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Fjarðabyggð hefur fengið varnarmanninn Loic Mbang Ondo í sínar raðir.

Ondo hefur undanfarin þrjú ár spilað með BÍ/Bolungarvík í 1. deildinni en í vetur fór hann til FH og Víkings Ó. á reynslu.
Ondo kom fyrst til Íslands árið 2010 þegar hann samdi við Grindavík en eldri bróðir hans, GIlles Mbang Ondo raðaði inn mörkum þar á sínum tíma.

Hinn 25 ára gamli Loic hefur samtals spilað 113 deildar og bikarleiki á Íslandi og skoraði sjö mörk.

Fjarðabyggð er spáð 11. sæti í Inkasso-deildinni en liðið leikur gegn Huginn í 1. umferðinni þann 7. maí.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.